Kæru bræður mínir og systur, ég tala við ykkur með kærleiksog viðkvæmnisorðum. Sérhver veraldleg áhugamál verða að fá lægri sess en hið mikla verk endurlausnarinnar . . . RR 33.2
Guð krefst þess sem við ekki gefum - skilyrðislausrar helgunar . . . En hve við höfum gert lítið! Og áhrif þess litla sem við höfum gert hafa minnkað vegna hlutleysisáhrifa þess sem við höfum skilið eftir ógert eða lagt út í og aldrei leitt til lykta og vegna algjörs áhugaleysis okkar. Hversu miklu höfum við ekki glatað með því að vanrækja að halda áfram og koma í kring verkinu sem Drottinn hefur falið okkur! Núverandi horfur ættu að skelfa okkur sem játum kristni. - R&H 30. des. 1902. RR 33.3