Go to full page →

Tíundi Hluti—Ginning gróðabrallsins RR 125

Kafla 45—Að seilast eftir auði RR 126

Löngunin til að standa í gróðabraski, að kaupa sveita-’ og borgarlóðir, eða hvað sem býður upp á skjótan og hóflausan gróða, hefur náð vissu hámarki, og hugur, hugsun og athöfn stefna öll í þá átt að ná í eins mikið og mögulegt er af fjársjóðum jarðarinnar á eins stuttum tíma og mögulegt er. Sumir hinna ungu á meðal okkar leggja sig vel fram við að flýta sér út í tortímingu vegna ákafrar löngunar sinnar í auðæfi. Þessi löngun í gróða opnar dyr hjartans fyrir freistingum óvinarins. Og freistinarnar sem koma eru svo blekkjandi, að sumir geta ekki staðið í gegn þeim . . . RR 126.1