Go to full page →

Kafla 2—Hinn örláti velgjörðarmaður okkar RR 12

Máttur Guðs opinberast í hjartslættinum, í starfsemi lungnanna og í þeim lífsstraumum sem renna um þúsundir mismunandi rása líkamans. Við erum háð honum sérhvert augnablik tilveru okkar og öll þægindi lífsins eru honum að þakka. Sá máttur og þeir hæfileikar sem hefja manninn yfir aðrar skapaðar verur eru gjafir Guðs. RR 12.1

Hann hleður á okkur velgerningum. Við erum honum háð varðandi fæðuna sem við borðum, vatnið sem við drekkum, fötin sem við klæðumst og loftið sem við öndum að okkur. Án sérstakra ráðstafana hans væri loftið hlaðið drepsóttum og eitri. Hann er örlátur velgjörðarmaður og sá sem viðheidur lífi okkar. R&H 18. sept. 1888. RR 12.2